5.6.2009 | 19:05
Nokkrar gamlar myndir frá höfninni í Eyjum.
Reynir VE 15 við löndun með krana í Friðarhöfn, mjög liklega er Högni í Vatnsdal við stjórn hans. Á næstu mynd er Sjöfn VE á landleið Elliðaey í baksýn, einnig má sjá bilflak í forgrunni myndarinnar.
Haraldu SF-70 heitir þessi frambyggði bátur sem er þarna við SA endan á Friðarhafnarbryggju, hann var byggður í Vestmannaeyjum 1962 af Skipaviðgerðum hf og var 35 brl byggður úr eik . Báturinn fórst 10. nóvember 1977 norður af Öndverðarnesi og með honum 2 menn. Á mynd fjögur er Leó VE-400 bundinn milli bryggja í Friðarhöfn, en þarna var verið að mála bátinn í góðu sumarveðri.
Þarna eru nokkrir Eyjabátar þar á meðal Reynir VE 15 í miðju, fyrir framan hann er Skúli Fógeti VE 185 en fyrir aftan Reynir er Ver VE 318.
Þessar myndir tók Vinur minn og vinnufélagi Ómar Kristmannsson á árunum 1962 til 1964
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt 6.6.2009 kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.6.2009 | 20:59
Minning um mann. Arnoddur Gunnlaugsson útgerðarmaður og skipstjóri
Arnoddur Gunnlaugsson skipstjóri F. 25. júni 1917 - D. 19. október 1995
Hryggð er nú í huga mér,
Góður drengur fallinn frá,
frestur enginn veitist þá.
Þegar sorgin sárust er
sýnist dimmt í heimi hér
Eins og sólar birtan blóð
breytist þá í frost og hríð.
Addi kom mér oft í hug
átti kraft og hetjudug.
Engan sá ég eins og hann,
ágætari heiðursmann.
átti jafnan heima þar.
Alinn upp við storm og strit,
stælti það hans afl og vit.
Fljótt hann fór að sækja sjó,
sjómanns snilld í honum bjó.
Ungur lærði Ægi við
örnefni og fiskimið.
Fögur var hans formannsbraut,
fiskisæld og heiður hlaut.
Ótal kosti yfirmanns
allir sáu í starfi hans.
Suðurey var sómaskip,
Arnoddur og útgerð hans
öll bar merki heiðursmanns.
Segja má til sjós og lands,
sólskin ríkti í lífi hans.
Heimilið var höfnin best,
hjartkær konan, gæfan mest.
Lífið okkur lánað er,
lifum við um tíma hér.
Er við hverfum heimi frá
himna dýrð við öðlumst þá.
Ljóðið er eftir Benedikt Sæmundsson
Bloggar | Breytt 4.6.2009 kl. 08:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.6.2009 | 20:05
Minning um mann: Sigurður Ingimundarson skipstjóri.
Sigurður Ingimundarson skipstjóri. F. 22. maí 1878. D. 5. apríl 1962.
Myndina tók Sigurgeir Jónasson hún er úr Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 1995
Hann var alin upp í sveit
um ættfólk hans ég lítið veit,
ungur flutti í Eyjarnar
aflaði sér fægðar þar.
Fór hann strax að sækja sjó
sótti fram því kapp var nóg,
ekki var þá unt að sjá
hvort aflakló hann væri þá.
Kostir hans þá komu í ljós
kunni það sem þarf til sjós,
áræði og einbeitt geð
aflasæld og heppni með.
Ef hann hafði öflugt far
aflkóngur löngum var,
fyllti lest og lét á dekk
löngum ef hann Blikann fékk.
Flaggskip Blikinn veglegt var
af Vestmannaeyja skipum bar.
Siggi Munda sótti fast
þó sýndist öðrum veður hvasst.
Einskipa hann oft var þá
aldrei kom hann Skansinn á,
fór um borð, varð fljótt um vik,
fulla ferð og ekkert hik.
Oft var hann þá einn á sjó
í ofsaveðri netin dró,
át svo skorið eins og mat
einna mest þá fiskað gat.
Veikur aldrei varð hann samt
vænan hafði fengið skammt
af orku og hreysti á æsku tíð
þó ekki væru kjörin blíð.
Ævistarf hans veglegt var
í Vestmannaeyjum hátt hann bar
sinni þjóð hann syni gaf,
sóma menn sem báru af.
Nú er hetjan fallin frá
fögnuður varð himnum á
er hann sigldi óskabyr
inn um himins fögru dyr.
Ljóðið er eftir Benedikt Sæmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þetta er undarleg frétt á Mbl hér fyrir neðan, talað er um hátíð hafsins, ekki orð um það að þetta er SJÓMANNADAGURINN og ekkert annað, það er með ólíkindum að sjómannasamtökin skuli samþykkja þessa breytingu á nafni Sjómannadagssin og sýnir það svart á hvítu hvað Sjómannadagráð er gjörsamlega slitið úr tengslum við sjómennina sjálfa.
Sjómannadagurinn er hátíðisdagur Sjómanna og haldin þeim til heiðurs, eftirfarandi er m.a. tilefni dagsins:
2. grein
a) Sjómannadagsráð hefur með höndum hátíðahöld Sjómannadagsins ár hvert í samræmi við stofnskrá um Sjómannadag frá 1937 og lög um Sjómannadag, nr. 20, 26.mars 1987.
Við tilhögun Sjómannadags skulu m.a. eftirfarandi markmið höfð að leiðarljósi: ,,
- Að stuðla að því að Sjómannadagurinn skipi verðugan sess í íslensku þjóðlífi.
- Að efla samhug meðal sjómanna, hinna ýmsu starfsgreina sjómannastéttarinnar og stuðla að nánu samstarfi þeirra.
- Að heiðra minningu látinna sjómanna, þá sérstaklega þeirra sem láta líf sitt vegna slysfara í starfi.
- Að heiðra fyrir björgun mannslífa og farsæl félags- og sjómannsstörf.
- Að kynna þjóðinni áhættusöm störf sjómanna og mikilvægi starfanna í þágu þjóðfélagsins .
Það er hvergi í lögum um SJÓMANNADAGINN talað um að það eigi að gera hann að hátíð fyrir hafið, eða breyta nafni hans. Í lögum heitir hann SJÓMANNADAGUR og þannig á það að vera.
Það er alveg eins hægt að kalla Jólin HÁTÍÐ verslunarmanna og Konudaginn Hátíð blómasala.
Ég skora á alla sjómenn að mótmæla þessu orðskrípi sem búið er að troða á SJÓMANNADAGINN.
Frétt MBL:
Tónverk fyrir þokulúðra
![Senda frétt](http://mbl.is/frettir/img/senda_frett.gif)
Hátíð hafsins verður haldin hátíðlega um næstu helgi í Reykjavík og í ár verður hún með nýju sniði. Grandagarðinum verður lokað fyrir almennri bílaumferð frá föstudagskvöldi fram á sunnudagskvöld og þar verður hátíðarsvæðið að þessu sinni.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá skipuleggendum verður komið fyrir tjöldum, leiktækjum og hljómsveitarpöllum á svæðinu en áætlað er að fluttir verði tilkomumiklir tónleikar þar sem leikið verður nýtt tónverk á þokulúðra þeirra skipa sem í höfninni verða.
Áætlað er að á annan tug skipa taki þátt í tónleikunum sem stýrt er í gegnum talstöð af Kjartani Ólafssyni prófessor í tónsmíðum.
Flutningurinn hefst klukkan 13 á laugardeginum og mun væntanlega heyrast víða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.6.2009 | 20:20
Benedikt Sæmundsson vélstjóri og ljóðskáld
Benedikt Sæmundsson vélstjóri og ljóðskáld er fæddur á Stokkseyri 7. október 1907 d. 3. okt. 2005. Hann ólst upp á Stokkseyri. Til Vestmannaeyja kom hann á bát sína fyrstu ferð 9. janúar 1926. Hreppti hann hið versta veður og tók ferðin frá Stokkseyri 24 klukkustundir en leiðin er 32 sjómílur. Guðmundur Vigfússon frá Holti skrifaði um þetta veður í Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1982 og nefndi hann greinina Stokkseyrarveðrið. Benedikt var á vertíðum í Eyjum til ársins 1940 en fór þá að sigla til Englans með fisk og sigldi öll stríðsárin. Hann átti heimili í Eyjum í 6 ár síðast Fífilgötu 8 en hann starfaði í Eyjum miklu lengur.
Hann bjó lengst af á Akureyri, var vélstjóri á togurum Ú.A. og póstbátnum Drang. En fór síðan í land og starfaði í frystihúsi Ú.A. í 34 ár, hann hætti störfum 85 ára gamall.
Þess skal getið að Benedikt byrjaði að gera kvæði 80 ára gamall, Hann hefur gert kvæði um fjölmarga Vestmannaeyinga sem sýnir það að hann hefur verið með hugan í Eyjum þó brottfluttur sé fyrir tugum ára.
Í bréfi sem hann sendi mér á sínum tíma endar hann á .þessa leið: ,, Ég á margar góðar minningar um Eyjarnar, því þar lifði ég ótal gleði- og ánæjustundir".
Ég ætla á næstunni að setja nokkur kvæði í viðbót eftir Benedikt hér á síðuna mína, öll eru þau um þekkta einstaklinga sem horfnir eru, en settu svip sinn á samfélag Eyjanna á sinni tíð.
Benedikt Elías kvæntist 2. nóv. 1946 Rebekku Jónsdóttur, f. á Rútsstöðum í Öngulsstaðahreppi í Eyjafirði 30. mars 1914, d. 14. apríl 2005
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2009 | 15:54
Minning um mann. Sighvatur Bjarnason útgerðarmaður og skipstjóri
Sighvatur Bjarnason Skipstjóri. F. 27. okt. 1903 D. 15. nóv 1975.
stáli vígðir, gildir þættir,
úrvalsfólk á allan hátt.
þar sem úthafsaldan syngur,
ungur vaskur Stokkseyringur,
lærði hafsins lögmál brátt.
Formaður varstu í fremstu röðum,
framsókn þín í með skrefum hröðum,
er þú komst í Eyjarnar.
Eftirsóttur aflamaður,
út á sjónum hress og glaður,
Erling keypti upp á sandi,
er þar hafði lent í strandi,
kominn nýr frá Köpenhafn.
Hófst þín útgerð og með honum,
aldrei brást hann þínum vonum,
honum fylgdi happ og lán.
Útgerð þín var öll til sóma,
aflsæld og stjórn til blóma,
áttir jafnan fleyin fríð.
Brátt þér veittist sæld og sómi,
segja má að stæði ljómi
af þinni frægu formannstíð.
Silfur hafs á síldarmiðum
sóttir fast, með engum griðum,
gekk þá fljótt að fylla skip.
Á mb. Minnie oft var gaman,
sæmdar menn þar komnir saman,.
þar var allt með sæmdarsvip.
Minningar ég margar geymi
meðan lifi í þessum heimi.
Á sama skip sigldum við.
Þú varst mér sem besti bróðir,
beindir mér á gæfu slóðir
út á lífsins ævisvið.
Hugsjón þín og happaverkin
hafa sýnt oss bestu merkin,
þó að þú sért fallin frá.
Minning þín mun lengi lifa,
landi og þjóð til heilla og þrifa.
Gleðst nú sál þín Guði hjá.
Ljóðið er eftir Benedikt Sæmundsson sem var fæddur á Stokkseyri 7. október 1907 hann var tugi vetrarvertíða vélstjóri á bátum frá Eyjum, en stundaði síldveiðar fyrir norðan á sumrin
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)