29.4.2010 | 22:49
Öryggismyndavélar í Bönkunum
Það er stundum skemmtileg umræða sem kemur fram í kaffispjalli um hrunið og skýrsluna frægu.Við vinnufélagarnir vorum í kaffi um daginn og þar var mikið talað um bankahrunið og öll þau vandamál sem því fylgi fyrir almenning sem ekkert hafð til saka unnið. Það var niðurstaða þessarar umræðu og menn voru sammála um það að bankarnir hafi hreinlega verið rændir innan frá.
Þá varð einum vinnufélaga okkar að orði: Ætli megi þá ekki segja með góðri samvisku að öryggismyndavélarnar í bönkunum hafi snúið öfugt ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.4.2010 | 21:51
Eldfell og Helgafell í baksýn
Eldfell og Helgafell
Viðlagasjóðshúsin sem komið var fyrir á Faxastig eftir gosið 1973 eru hér til vinstri á myndinni. þá er hér fremst Hásteinsblokkin eins og hún hefur verið kölluð, en þetta var fyrsta blokk sem byggð var í Vestmannaeyjum.
Myndina tók Jóhann Pálsson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2010 | 21:26
Austurbærinn á Heimaey
Austurbærinn á Heimaey
Mikið af þessum húsum fór undir hraun og ösku í eldgosinu 1973.
þessar fallegu myndir tók Jóhann Pálsson skipstjóri og útgerðarmaður. ( F. 23.04.1909 D. 16.02.2000.)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2010 | 20:50
Myndir sem Jóhann Pálsson skipstjóri tók.
Bloggar | Breytt 29.4.2010 kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2010 | 16:10
Gleðilegt sumar
Sendi bloggvinum mínum, og öllum sem hafa heimsótt siðuna mína nafar.blogg.is góðar óskir um Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.
Í dag notaði ég góða veðrið og fór bryggjurúnt um Reykjavíkurhöfn, þar sá ég m.a. Sighvat Bjarnason VE nýmálaðann og smellti af honum þessari mynd. Eins og sjá má er þetta stærðarinnar skip.
Frekar rólegt var við höfnina lítið um ferðamenn en þó voru farþegaskipin sum hver á ferðini með eitthvað af farþegum.
Það var frekar kallt við höfnina eins og oft áður enda norðan næðingur. Og hér er annað skip nýmálað sem heitir Herkúles.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
21.4.2010 | 22:33
Tómstundaheimilið 1960 til 1962
Þarna lærðu menn ljósmyndun, framköllun og stækkun ljósmynda.
T.f.v: fremri röð Kristján Eggertsson, vantar nafn, Sigurður Stefánsson, Henrý Erlendsson.
Aftari röðt.f.v: Hannes Bjarnason, Gísli Már Gíslason og Hjörtur Sveinbjörnsson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2010 | 22:21
Formannavísur eftir Loft Guðmundsson
Þá hef ég lokið við að setja inn allar Formannavísurnar sem Loftur Guðmundsson gerði um Formenn í Eyjum á vetrarvertíð árið 1944.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2010 | 23:01
Eldgosið í Eyjafjallajökli séð frá Fljótshlíðinni
Eldgosið í Eyjafjallajökli
Þessar myndir af eldgosinu í Eyjafjallajökli tók Stefnir Snorrason sjúkraflutningamaður og Vestmannaeyingur þann 17. apríl er hann var á ferð í Fljótshlíðinni að gæta að sumarbústað Sigurðar Óskarssonar.
Myndirnar tala sínu máli.
Á myndinni eru t.f.v: Snorri Stefnisson, Soffía Sigurðardóttir, Tinna María Stefnisdóttir og Óskar Stefnisson. Því miður sendi myndasmiðurinn ekki mynd af sjálfum sér, en kannski fæ ég hana seinna. Takk fyrir þessar myndir Stefnir og Soffía.
kær kveðja SÞS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.4.2010 | 20:42
Formannavísur um formenn frá árinu 1944
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)