30.3.2010 | 23:18
Saga báts: Húni II. í tímana rás
Einn góður vinur minn sendi mér um daginn lítið rit sem ber nafnið: Saga báts: Húni II. í tímana rás.
Höfundur efnis: Þórarinn Hjartarson
Útfefandi: Hollvinir Húna II.
Gefið út með styrk frá Hagþenki.
Forsíðumynd: Þorgeir Baldursson.
Í þessu riti er rakin saga Húna II í máli og myndum, hvar hann var byggður og hverjir unnu við smíðina, einnig hverjir hafa átt skipið og hvernig hefur gengið að fiska á það.
Akureyringar eiga heiður skilið að hafa nú tekið Húna II í sína vorslu og eru staðráðnir í að varðveita skipið, sem nú er safnskip sem notað er til skemmtisiglinga með farþega.
Ég skrifa kannski meira seinna um þetta skip hér á síðuna mína, en ég hef aðeins gegnum starfið mitt kynnst þeim frábæru mönnum sem í dag eru eru þessir svokölluðu hollvinir Húna II.
Það gætu margir áhugamenn um varðveitslu gamalla skipa tekið þessa menn á Akureyri til fyrirmyndar.
Kær kveðja
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2010 | 21:57
Skírn Sigmars Benóný á Króknum
Um helgina fórum við fjölskyldan til Sauðakróks til að vera við skírn á nýjum peyja sem kom í heiminn 9. febrúar, foreldrar Óskar Friðrik Sigmarsson og Júlía Pálmadóttir Sighvats, Peyjinn fékk nafnið Sigmar Benóný. Myndirnar eru teknar við það tækifæri. Mynd 1. Vantar nafnið á myndasmiðinn, Magnús Orri, Óskar Friðrik, Júlía og Sigmar Benóný. Mynd 2. Óskar Friðrik, Magnús Orri og Ketill.
Myndirnar hér fyrir neðan eru af Júlíu sem gerir sig klára fyrir skírnina, mynd 4. er Hrefna Brynja að lesa ljóð eftir Pálma afa Sigmars Benóný og síðan kemur presturinn sem heitir Gísli og Sigmar Þór.
Fjölskyldumynd þar sem Gömlu hjónin eru með börnum og mökum þeirra ásamt barnabörnum. Fremsta röð tfv: Magnús Orri Óskarsson, Óskar Friðrik Sigmarsson, Hrefna Brynja Gísladottir, Kolbrún Ósk Óskarsdóttir, heldur á Sigmari Benóný Óskarsyni, Sigmar Þór Sveinbjörnsson, Matthías Gíslason, Bryndís Gísladóttir. Aftari röð tfv: Júlía Pálmadóttir Sighvats, Harpa Sigmarsdóttir, Kolbrún Soffía Þórsdóttir, Þór Sæþórsson, Hrund Snorradóttir og Gísli Sigmarsson.
Pálmi, Hrefna Brynja og Sigmar Þór, Birgitta í dyrunum. þá koma Birgitta og Kolla í góðum gír. og hér fyrir neðan eru stolltar ömmur Kolla og Birgitta með Sigmar Benóný.
Bryndís, Hrund, Harpa og Kolbrún Soffía.
Bloggar | Breytt 1.4.2010 kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.3.2010 | 22:53
Skemmtileg mynd
Geirþrúður Sigurðardóttir ( Geira) sendi mér þessa skemmtilegu mynd Þarna sést í Þurkhúsið og Ystiklettur og Miðklettur eru á miðri mynd.
Bloggar | Breytt 8.4.2010 kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.3.2010 | 23:18
Sveinbjörn Snæbjörnsson 50 ára 1971
Myndirnar eru teknar í 50 ára afmæli Bjössa Snæ en afmælisveislan var haldin á Hótel Hamar við Heimagötu árið 1971; þarna má sjá nokkur þekkt andlit sem Eyjamenn þekkja en mikið af þessu fólki er nú farið yfir móðuna miklu.
Bloggar | Breytt 28.3.2010 kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.3.2010 | 21:06
Myndasería af Vestmannaey VE 444
Svona er á sjó
Frábærar myndir af Vestmannaey VE 444 þar sem hún siglir í suðaustan hvassviðri frá Faxasundi og inn til Vestmannaeyja.
Myndirnar sendi mér vinur minn Torfi Haraldsson og þakka ég honum kærlega fyrir þessa skemmtilegu myndaseríu.
Til að stækka myndirnar þarf að tvíklikka á þær.
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.3.2010 | 18:21
Leó um borð í Leó VE 400
Það hefur alltaf verið vinsælt hjá peyjum í Eyjum að fá að fara með í róður á skipum sem papparnir eru á eða eiga.
Myndina tók ég í Júni 1964 af Leó Óskarsyni syni Óskars Matthíassonar þegar hann fór með okkur í róður á Leó VE 400. Þarna erum við auðsjáanlega á trolli og á keyrslu með fótreipistrollið inni. Þarna má einnig sjá bastkörfur sem notaðar voru undir kola og lifur og fl.
Leó varð síðar skipstjóri og útgerðarmður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.3.2010 | 18:04
Kristbjörg VE 70
Kristbjörg VE 70 við Básaskersbryggju í Vestmannaeyjum. Eigandi Sveinn Hjörleifsson skipstjóri og útgerðarmaður.
Myndina tók ég árið 1960 þegar hún kom ný til landsins frá Noregi.
Mig minnir að þegar skipið kom hafi verið búið að steina niður þorskanet á storar kerrur og það beið á bryggunni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.3.2010 | 01:12
Frumkvöðlastarf og menntun á Íslandi
Það er fróðlegt að lesa þetta nú árið 2010 hvernig háskólamentaða fólkið metur stöðuna hvað varðar frumkvöðlastarf á Íslandi árið 2006, ég náði í þetta á Háskólavefnum. Það er spurnig, Þurfum við að leggja ofuráherslu á háskólamentun og útskrifa meira af háskólamenntuðu fólki, þarf ekki að huga betur að verkmentun á Íslandi ? Er ekki sjávarútvegur, landbúnaður og íslenskur iðnaður að hjálpa okkur mest nú í kreppuni. Ég tek það fram að ég er ekki á móti góðri menntun, en eins og segir hér hér að neðan í kaflanum; Hver eru skilaboð skýrslunnar : "Menntun er arðsamasta fjárfestingin fyrir stjórnvöld og best er ef menntastefna og atvinnustefna fer saman". Þetta hefur því miður ekki verið þannig á síðustu árum.
Kær kveðja SÞS
Þessi grein birtist í Viðskiptablaðinu þann 17. maí 2006
Þurfum að fjölga verulega háskólanemum á næstu árum
Fjöldi háskólanema á Íslandi hefur tvöfaldast á einum áratug, en við erum þó langt á eftir öðrum löndum hvað varðar fjölda þeirra sem hafa háskólamenntun. Að sumu leyti erum við eins og vanþróuðu ríkin hvað það varðar að frumkvöðlastarf er mikið, en menntun ekki nægilega mikil. Það eru auðvitað neikvæðu fréttirnar.
Margar athyglisverðar niðurstöður er að finna í skýrslunni að þessu sinni. Þessar má telja á meðal þeirra helstu:
- Árið 2005 mældust um 10,7% þjóðarinnar á aldrinum 18-64 ára stunda frumkvöðlastarfsemi, eða um það bil 20 þúsund manns.
- Umfang frumkvöðlastarfsemi á Íslandi árið 2005 var meira en í flestum öðrum löndum í heiminum. Það var nokkuð meira en í hátekjulöndunum í heild, talsvert meira en á öðrum Norðurlöndum (að Noregi undanskildum) en sambærilegt við Bandaríkin.
- Íslendingar á aldrinum 35-44 ára eru líklegri en aðrir landsmenn til að stunda frumkvöðlastarfsemi og er þriðjungur þeirra sem stundar hana á því aldursbili.
- Karlar eru meira en tvöfalt líklegri en konur til að stunda frumkvöðlastarfsemi
- Einstaklingar sem hafa lokið framhaldsskólaprófi eru líklegri til að stunda frumkvöðlastarfsemi en bæði þeir sem eiga því ólokið og þeir sem hafa lokið háskólaprófi.
· Sláandi lágt hlutfall þeirra sem stunda frumkvöðlastarfsemi á Íslandi hefur lokið háskólaprófi í samanburði við önnur hátekjulönd.
- Frumkvöðlastarfsemi á Íslandi tilheyrir í fæstum tilfellum þekkingariðnaði. Rúmlega helmingur tilheyrir frumatvinnuvegunum ásamt iðnaði og samgöngum. Tæplega fimmtungur starfseminnar er á sviði fyrirtækjaþjónustu og um 17% byggir á tækniþekkingu stofnenda.
- Meira en helmingur þjóðarinnar telur sig að einhverju leyti búa yfir þeirri færni sem þarf til þess að stunda frumkvöðlastarfsemi.
- Það er mat sérfræðinga að núverandi staða hvað varðar menntun og þjálfun, verkefni á vegum hins opinbera, útbreiðslu rannsóknar- og þróunarstarfs og fjármögnunar hindri frumkvöðlastarfsemi á Íslandi.
- Sérfræðingar meta fjármögnun sem mesta veikleikann í umhverfi frumkvöðlastarfsemi á Íslandi. Þó að auðvelt sé að fá lánsfjármagn er áhættufjármagn af mjög skornum skammti. Aðgangur að framtaksfjármagni er sérstaklega takmarkaður og það kemur niður á nýskapandi fyrirtækjum og fyrirtækjum með mikla vaxtarmöguleika.
Hver eru skilaboð skýrslunnar?
Það eru ýmsar ályktanir sem má draga af þessu og við þurfum að leiða hugann að. Stóru skilaboðin eru þessi. Við þurfum fleira háskólamenntað fólk til að geta aukið frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun á Íslandi.
- Það er ekki ástæða til að óttast ofmenntun fólks á Íslandi. Hátt atvinnustig hefur trúlega dregið fólk úr frumkvöðlastarfi í öruggari störf t.d. hjá stærri fyrirtækjum. Það gæti verið skýring á því að færri vilja ráðast í eigin frumkvöðlaverkefni.
- Það er skynsamlegt að fjölga menntafólki því það eykur ekki þenslu og verið er að fjárfesta til framtíðar. Menntun er arðsamasta fjárfestingin fyrir stjórnvöld og best er ef menntastefna og atvinnustefna fer saman.
- Það þarf að passa vel upp á það að við fáum vel menntaða Íslendinga erlendis frá aftur til baka til landsins. Það er ekki víst að gott samfélag og náttúra landsins dugi, ef önnur skilyrði eru ekki í lagi. Þar spilar menning, listir og almennt hin svokölluðu óefnislegu lífsgæði miklu máli.
- Það er ekki nauðsynlegt að allir stofni ný fyrirtæki eða þrói nýjar vörur eða þjónustu. Gæði frekar en magn skiptir meira máli. Það er einnig mikils virði að þróa ný afbrigði af þekktri vöru eða þjónustu m.a. til að bæta það sem fyrir er, lækka verð eða auka þjónustu.
- Um 70-90% af öllum nýsköpunarfyrirtækjum eða frumkvöðlaverkefnum mistakast. Það er löngu vitað að stærsti hluti tilrauna á þessu sviði mistakast og mikilvægt að þetta sé öllum ljóst. Það er heldur ekki eðli allra að vera frumkvöðlar. Það þarf því að fara varlega í að hvetja alla í að stofna ný fyrirtæki eða taka mikla áhættu strax að loknu námi. Aðalatriðið er að fólk kunni það og geri sér grein fyrir tækifærunum en einnig áhættunni. Getur verið að konur séu skynsamari en karlar í þessum málum?
- Erlend þekkingarfyrirtæki eru að bjóða í okkar fólk. Ég þekki fjölmörg dæmi um þetta og við Íslendingar verðum að átta okkur á því að það er alþjóðleg samkeppni um fólk og þekkingu þess. Meðan við keppum um að fá stóriðjufyrirtæki eru aðrir að keppa um að ná fólki til að byggja upp þekkingarfyrirtæki nýja hagkerfisins.
Í þekkingarþjóðfélagi þessarar aldar verða ekki mörk á milli fræðigreina. Við þurfum að tileinka okkur þverfaglega hugsun og mikla nýsköpun. Gott dæmi um það er hvað nemendur í Listaháskóla Íslands eru að sýna þessa dagana í Listasafni Reykjavíkur og hvernig Andri Snær Magnason hefur náð að hafa meiri áhrif á þjóðina í þessu efni en nokkur stjórnmálaleiðtogi undanfarinna ára. Viðskipti, listir, menning, náttúra landsins, hugvit og sköpun eru að tengjast nánum böndum. Nýsköpun og frumkvöðlastarf tengist nánast öllum greinum. Það mun skila okkur langt ef við náum að nýta þá auðlind sem mikilvægari er öllum öðrum þ.e. hugvitið.
þessar upplýsingar eru teknar af Háskólavef
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2010 | 17:28
Nýjar myndir frá Bakkafjöru
Hér koma alveg glænýjar myndir frá Bakkafjöru þegar Herjólfur siglldi þarna upp að Bakkafjöruhöfn í fyrradag, ölduhæð á þessum tíma var um það bil 2,5 m að ég held og suðaustanátt. Á fyrstu mynd sést inn um hálft hafnarmynnið en staurarnir sem standa þarna upp úr eru við enda varnargarðsins.
Hér eru myndir af vinnuvélum og byggingakrönum á svæðinu
Hér sést á annari myndinni beint inn um hafnarminnið og innsiglingin, tekið skal fram að varnargarðarnir eru ekki nærri komnir í þá hæð sem þeir koma til með að vera.
Á síðustu myndinni sjást garðarnir og púströrið á Herjólfi.
Myndirnar tók Stefán Sigurðsson kokkur á Herjólfi, ég þakka honum kærlega fyrir að senda mér þessar myndir og leyfa mér að setja þær á bloggið mitt.
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.3.2010 | 17:04
Góð mynd af fallegu skipi
Herjólfur í innsiglingunni í Þorlákshöfn, þetta er sérstaklega falleg mynd af skipinu.
Myndina tók Ivar Gunnlaugsson skipstjóri á Herjóllfi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)