1.3.2009 | 21:22
Þyrlusveit Landhelgisgæslunar er lífsnauðsynleg
Þegar fækkun dauðaslysa á sjó ber á góma kemur fyrst upp í hugann Landhelgisgæslan, hún mun eiga stóran þátt í að bjarga sjómönnum frá alvarlegum slysum og dauða, hún hefur haft á að skipa góðum sjómönnum, flugmönnum og flugliðum. Hennar þyrlusveit hefur unnið ótrúleg björgunarafrek, og hefur hróður þyrluáhafna aukist til muna eftir að LHG fékk stærri og kraftmeiri þyrlur eins TF LÍF, en hún kom til landsins 23 júní 1995.
Í samantekt sem ég fékk hjá flugdeild LHG kemur fram að frá árunum 1999 til 2008 eða í 10 ár hafa þyrlurnar bjargað 203 sjómönnum úr sjó eða frá skipum og er þá með taldir þeir sem sóttir hafa verið veikir eða slasaðir um borð í skip á hafi úti.
Þyrlusveitir LHG hafa því bjargað að meðaltali 23,3 mönnum á ári síðustu 10 árin. Það var stórt gæfuspor þegar ákveðið var að kaupa nýju Puma þyrluna sem hefur sannað gildi svo um munar. TF LÍF og áhöfn hennar hefur bjargað hundruðum sjómanna á undanförnum árum.
Myndin er tekin á Sjómannadaginn 1994 af TF-SIF
Þyrlan TF LÍF bjargaði einu og sömu vikuna 5. til 10. mars 1997 hvorki meira né minna en 39 sjómönnum af þremur skipum sem voru: Flutningaskipið Vikartindur sem strandaði við Þjórsárósa þan 5 mars 1997. Þar bjargaði Þyrlan 19 mönnum af skipinu í slæmu veðri 8-9 vindstigum og gekk á með hagléli hvössum vindhviðum og mikilli ölduhæð. Svo slæmt var veðrið og skyggni að björgunarmenn í landi sáu ekki þegar skipverjar voru hífðir frá skipinu þótt skipið væri aðeins 100 til 150 metra frá landi.
Flutningaskipið Dísarfelli sem fórst 9. mars 1997 er það var statt 100 sjómílur SA af Hornafirði í kolvitlausu veðri og 8 til 10 metra ölduhæð. Þar var 10 sjómönnum bjargað en tveir menn fórust. Mennirnir höfðu þá verið í sjónum innan um fljótandi gáma, brak og olíubrák í tvo tíma þegar þyrlan kom þeim til bjargar, en þeir höfðu klæðst björgunarbúningum rétt áður en skipið fórst.
Þann 10 mars 1997 bjargaði TF LÍF tíu manna áhöfn netabátsins Þorsteins GK þegar skipið rak vélarvana að landi undir Krýsuvíkurbergi, þar sem það strandaði upp í klettunum. Rétt eftir að björgun var lokið standaði skipið og eiðilagðist á strandstað
Áhöfn TF-LÍF sem bjargaði áhöfn á Dísarfelli. Tfv; Benóný Ásgrímsson Flugstjóri, Auðunn Kristinsson stýrimaður og sigmaður, Hilmar Þórarinsson flugvirki og spilmaður, Hermann Sigurðsson flugmaður, Óskar Einarsson læknir.
Þótt ég hafi hér að ofan nefnt örfáar bjarganir sem framkvæmdar voru á TF-LÍf, þá hefur ekki síður mörgum verið bjargað með öðrum þyrlum LHG.
Þann 14. Mars 1987 strandaði Barðinn GK norðurundir Dritvík á Snæfellsnesi þar sem hann skorðaðist milli klettana og hallaði 70 til 80° á stjórnborða. Skipbrotsmenn voru allir í þvögu inni í kortaklefa sem er inn af stýrishúsi. Stýrishúsið var opið og gekk sjór þar í gegn og voru mennirnir meira og minna í sjó.
Ekki reyndist mögulegt að bjarga mönnunum frá landi þó skipið væri mjög stutt frá björgunarmönnum sem komnir voru á strandstað.
Áhöfn TF SIF
Þegar Þyrlan TF- SIF kom á vetfang sást engin hreyfing á mönnum um borð enda gaf sjó yfir allt skipið. Eftir nokkra stund sáust menn í stýrishúsi Barðans GK. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður tókst áhöfn þyrlunnar að slaka línu niður að brúardyrum og þannig hífði áhöfn þyrlunnar mennina upp í þyrluna einn í einu. þarna var allri áhöfn skipsins 9 mönnum bjargað úr bráðum lífsháska, þegar ekkert annað gat komið þeim til hjálpar.
Þetta eru dæmi um afrek starfsmanna Landhelgisgæslunnar, það eru ekki fá mannslíf sem þeir hafa bjargað, og oft á tíðum sett sig í lífshættu til þess.
Menn skulu hafa það í huga að björgunarstörf eru oft unnin við mjög erfiðar aðstæður og eru því oft á tíðum mjög hættuleg. Það er því rétt að minnast þess að LHG hefur misst 10 starfsmenn frá 1960 þar af fjóra í flugslysi í nóvember 1983 þegar Þyrlan TF-RÁN fórst í Jökulfjörðum og með henni fjórir menn. Sex hafa látist við skyldustörf á skipunum. Þá má einnig minnast þeirra 12 sjómanna sem fórust með vitaskipinu Hermóði 1959 en skipið hafði á þessum tíma verið leigt til að sinna landhelgisstörfum.
Ég er ekki í vafa um að LHG og þyrlusveit hennar á mjög stóran þátt í að dauðaslysum á sjómönnum hefur fækkað á síðustu 20 til 30 árum.
Barðinn GK 475 á strandstað og TF-SIF við björgun. Myndina tók Stefán Böðvarsson Hellissandi
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt 4.3.2009 kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
1.3.2009 | 17:05
Síðutogarinn Bjarnarey VE 11
Þeir voru glæsilegir þessir gömlu síðutogarar. Hér á myndinni er togarinn Bjarnarey VE 11 og í fjarska má sjá Elliðaey VE- 10 sigla í gagnstæða átt. Þetta eru vel gerð mynd af tveim togurum sem gerðir voru út frá Vestmannaeyjam í gamla daga.
Bjarnarey VE - 10
Ellíðaey VE - 11
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt 8.3.2009 kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)