Fallegar myndir Heiðar Egilsson

Heiðar ný mynd 1Heiðar ný mynd 8

 Sérstaklega fallegar myndir frá Eyjum sem Heiðar Egilsson hefur tekið af Sólarlagi.

 

Heiðar ný mynd 9


Nýársósk.

 

NÝÁRSÓSK

Öllum sendi óskir hlýja,

einig bæði á landi og sjó,

að þið lifið árið nýja

yndi við í friði og ró.

Una Jónsdóttir 

  

skötuveisla og fl 060


Styðjum Björgunarsveitirnar

 Á fáum götum á landinu hafa gegnum árin verið sprengt jafn mikið eða meira af flugeldum, tertum og hvað þetta heitir allt saman og við Illugagatu í Vestmannaeyjum. Þetta má þakka útgerðarmönnunum Bedda á Glófaxa og Vitta útgerðarmanni á Stíganda en þeir búa báðir við Illugagötu. Þessir útgerðarmenn hafa stutt Björgunarfélag Vestmannaeyja svo um munar gegnum árin með því að kaupa mikið magn flugelda af öllum stærðum og gerðum. Á ég sterkar og góðar minningar frá því þegar ég bjó við IIlugagötu og tók þátt í því með Bedda og mörgum fleiri að koma hluta af öllu þessu púðurdóti á loft. Ógleymanleg þessi gamlárskvöld með góðum nágrönnum sem við áttum þegar við bjuggum við  Illugagötu 38. 

Myndin er tekin af Heiðari Egilssyni og er af Illugagötu, fremsta húsið á miðri mynd er Illugagata 2 þar sem Óskar Matt og Þóra Sigurjónsdóttir byggðu og bjuggu til margra ára, blessuð sé minning þeirra.

Enn og aftur STYÐJUM BJÖRGUNARSVEITIRNAR með því að kaupa hjá þeim flugelda.  

 

Heiðar gamlárskvöld 1


Auðunn Jörgensson

Auðunn og Óskar Matt 007

  Á þorláksmessu fór ég á bryggjurúnt eins og vanalega, í leiðinni var ég búinn að mæla mér mót við Auðunn frænda minn sem er að gera upp gamlann trébát í einu húsinu á Grandagarði.

Auðunn var nýbúinn að setja vélina niður  þegar ég hitti hann. Það sem búið er að gera við bátinn er virkilega flott og vel gert, en töluverð vinna er eftir í lúkkar og inni í stýrishúsi. Það var virkilega gaman að skoða bátinn og ekki síður gaman að spjalla við Auðunn um þetta tómstundaáhugamál hans.        Þarna hitti ég líka Aron frænda son Auðuns en hann hafði ég ekki séð síðan hann var smápeyi.

Það verður gaman að fylgjast með þegar Óskar Matt verður sjósettur fullbúinn en það á báturinn að heita.  

Myndirnar eru af þeim feðgum Auðunn Jörgensyni og Aron Auðunssyni og bátnum. 

 

 

  

 

Auðunn og Óskar Matt 012

 Auðunn og Óskar Matt 013


Flottur viti sem Sigurður Óskarsson smíðaði

 Glæsilegur viti sem Sigurður Óskarsson mágur minn gaf mér fyrir jólinn, Sigggi  er einn af þeim sem getur smíðað hvað sem er úr hverju sem er, það skiptir ekki máli hvort  það er úr járnii, tré eða plasti eða hvort það eru vísur lög eða ljóð þetta leikur allt í höndunum eða höfðinu á honum. Það er ekki öllum gefið að vera með smiðauga og skáldagáfu samtímis. Vitinn er hlutur sem mér þykir mjög vænt um að eiga. 

vitinn 008


Ómetanlegt að eiga þessar björgunarsveitir

Það er ómetanlegt að eiga þessar björgunarsveitir vítt og breytt um landið alltaf til taks þegar illviðri skella á oft með stuttum fyrirvara. Það er ekki víst að allir geri sér grein fyrir því erfiða verkefni sem þetta fólk leggur á sig að vera úti í snarvitlausu veðri og vinna hörðum höndum við að bjarga öðru fólki.

Eitt getur hver og einn gert til að sýna þessum björgunarsveitum að við metum þeirra störf, það er að kaupa af þeim flugelda nú fyrir áramótin. Þannig stuðlum við að því að björgunarsveitirnar geti haldið við þeim björgunarbúnaði sem þær svo sannarlega þurfa við erfiðar aðstæður eins og nú þessa dagana.


mbl.is Hátt í 200 manns björguðu jólunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjöfin

Gjöfin

 

Ég veit ekki hvort þú hefur,

huga þinn við það fest.

Að fegursta gjöf sem þú gefur,

er gjöfin sem varla sést.

 

Ástúð í andartaki,

auga sem glaðlega hlær.

Hlýja í handartaki,

hjarta sem örar slær.

 

Allt sem þú hugsar í hljóði,

heiminum breytir til.

Gef því úr sálar sjóði,

sakleysi fegurð og yl.

--

Höfundur ókunnur


Jólakveðja

Kæra bloggvinir og allir sem heimsækja þessa síðu nafar blogg,

Sendi mínar bestu óskir um gleðileg jól gott og farsælt komandi ár
með þökk fyrir ánæjuleg samskipti  liðnu ári.

Hátíðarkveðjur


Mig langaði að senda ykkur þetta fallega ljóð með þessari jólakveðju.

Vökvaðu kærleikans viðkvæmu rós
Þá veitist þér andlegur styrkur.

Kveiktu svo örlítið aðventuljós,

Þá eyðist þitt skammdegis myrkur.


Það ljós hefur tindrað um aldir og ár

yljað um dali og voga.

Þó kertið sé lítið og kveikurinn smár

mun kærleikur fylgja þeim loga.


Höf. Hákon Aðalsteinsson

 

Því miður get ég ekki enn sett inn myndir hér á bloggið mitt. 


Sigmar Þór Sveinbjörnsson


Ellirey eða Elliðaey

Óskar Kárason frá Presthúsum síðar Sunnuhól í Eyjum  gerði þetta ljóð um Elliðaey, en hann var á yngri árum lengi veiðimaður í þessari fallegu Eyju. Eins og kemur fram í ljóðinu kallar Óskar Eyjuna Ellirey eins og svo margir eldri menn. Ég var um tíma á sjó með Binna í Gröf á bæði Gullborg VE 38  og Elliðaey VE 45 og hann kallaði bæði bátinn og eyjuna aldrei annað en Ellirey, ef hann var spurður af hverju hann segði alltaf Ellirey, svaraði hann einfaldlega; hún heitir Ellirey, þannig var það útrætt mál. 

Óskar Kárason var fæddur að Vestur- Holtum undir Eyjafjöllum 09.08.1905, en fluttist 7 ára með foreldrum sinum til Eyja.  Hann lést 3.05. 1970.

 

Ellirey

 

Ellirey á frelsi og fegurð lista,

fugl og gróður prýða björgin ströng,

hennar fold ég ungur gerði gista

glöðum drengjum með í leik og söng.

Ég þrá hennar frelsi og dýrð að finna

fullkominn þá júlísólin skín

Þá er hún meðal draumadjásna minna

dámsamlegust paradísin mín.

 


Vefji þig

Vefji þig á vinar armi

vonarinnar bjarta sól

bægi frá þér böli og harmi

blessun Guðs um heilög jól.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband