30.1.2010 | 16:51
Víking Björgunarbátar bjarga í fyrsta skipti.
Það eru eru 50 ár síðan Vínking Gúmmíbátaframleiðandinn stofnaði fyrirtækið, hér segir frá tveimur slysum þar sem Gúmmíbjörgunarbátar Víkings koma við sögu.
Fyrsti VIKING gúmmíbjörgunarbáturinn bjargar sjómönnum. Þann 10. mars 1963 fórst Danska fiskiskipið Dagmar Larsen. Eftir mjög ýtarlega en árangurslausa leit SOK, Danska leitar- og björgunarliðsins, auk liðsinnis tveggja tundurduflaslæðara og nokkurra annarra herskipa, leit sem stóð yfir í nokkra daga, og náði yfir 10,000 fermílna svæði, var ákveðið að hætta leit. Í kjölfarið hafði SOK samband við Hr. Bjerre-Madsen til að fá úr því skorið hvort fiskiskipið hafi verið útbúið gúmmíbjörgunarbát. Fjölskyldur áhafnarinnar töldu svo ekki vera en Hr. Bjerre-Madsen upplýsti SOK með ánægju að rétt fyrir brottför hafi hann sannfært Hr. Larsen, eiganda fiskveiðiskipsins, að setja um borð í skipið gúmmíbjörgunarbáta, áður en haldið var til hafs. Þar af leiðandi var Hr. Larsen og tveimur áhafnarmeðlimum hans bjargað eftir þriggja sólarhringa dvöl í VIKING gúmmíbjörgunarbáti. Fregnum af afrdifum fiskveiðimannanna þriggja var tekið með fögnuði, þá sérstaklega af Nordisk Gummibåtsfabrik og starfsmanna þess er höfðu allir fylgst með fregnum af atvikinu á útvarpsstöðinni Radio Blåvand. Þó að sýnt hafði verið fram á mikilvægi gúmmíbjörgunarbátanna áttu enn nokkur ár eftir að líða áður en gúmmíbjörgunarbáturinn var í raun viðurkenndur á heimsvísu sem björgunartæki:
Þann 7. september 1966 fórst Norska ferjan Skagerak úti við Hirtshals á vesturströnd Dannmerkur. Öllum 144 farþegum skipsins var bjargað í einni best heppnu björgunaraðgerð sögunnar. 22 tuttugu manna VIKING gúmmíbjörgunarbátar voru notaðir og leiddi velgengni aðgerðarinnar til þess að VIKING vörur voru kynntar á heimsvísu.
Í Sjómannablaðinu Víkingnum segir frá þessu slysi:
Norska ferjan ,, Skagen ferst 143 manslífum bjargað.
(Mynd 1) Larsen ásamt einum skipverja hans.(Mynd 2) 22 VIKING gúmmíbjörgunarbátar í notkun hver bátur tekur 20 manns innanborðs.Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2010 | 13:28
Á Þjóðhátíð fyrir nokkuð mörgum árum.
Myndir frá Þjóðhátíð: Grétar og Sigmar Þór Sveinbjörnsynir og Frændurnir Sigmar Þröstur Óskarsson og Ingibergur Óskarsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2010 | 18:30
Kristján Óskarsson fv. skipstjóri og útgerðarmaður
Flott mynd af Kristjáni Óskarssyni vini mínum og frænda í lúkkarnum á Leó VE 400. Klæddur eftir nýjustu tísku líklega á árunum 1966 - 1967.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.1.2010 | 00:11
Grétar og Bjarki Sveinbjörnsynir
Flottir Peyjar
T.f.h; Grétar og Bjarki Sveinbörnsynir, húsið sem sést í bakgrunninn er Smiður hf við strandveg, nú prentsmiðjan hjá Fréttum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2010 | 22:25
Grafarinn að störfum
Bloggar | Breytt 30.1.2010 kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.1.2010 | 22:16
Árgangur 1946 stelpur
Árgangsmót Vestmannaeyinga fædda 1946 verður í sumar í ágústmánuði, hér er mynd af nokkrum eyjastelpum úr þessum árgangi.
Tfh: Helga, ???, Fjóla, Rannveig og ???'. Vantar nöfn á tveimur stelpum,?
Ef einhver þekkti þær væri gaman að fá nöfnin, Mig minnir að þessi mynd hafi verið tekinn í skemmtigöngu.
Bloggar | Breytt 16.1.2011 kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2010 | 22:08
Óskar og Sigurjón
Óskar Matthíasson og Sigurjón Óskarson skipstjórar og Útgerðarmenn, og Óskar Matthíasson yngri nú skipstjóri á skuttogaranum Bylgju VE 75.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2010 | 17:03
Árshátíða söngbók
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.1.2010 | 16:32
Myndir af flottum peyjum
Myndirnar eru teknar 1978 til 1980 eða á því árabili. Gísli Sigmarson að koma inn úr snjónum rjóður í kinnum. Og seinni myndin er af vinunum Haraldi Bergvinssyni og Gísla Sigmarssyni í byssuleik fyrir utan Illugagötu 38 VM.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2010 | 00:32
Ákveðinn að vera jákvæður í dag
Ég vakna þennan í morgun og vel að vera góður
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður
ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.
Ég vel því að velja að vandamálin fá
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.
Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít.
Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
þetta er góður dagur, hafðu það sem best
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.
Höfundur ókunnur
Kær kveðja SÞS
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)