Alvöru vinátta er góður kostur fyrir alla

 

Alvöru vinátta

Dag einn, þegar ég var á fyrsta ári í menntaskóla, sá ég strák úr bekknum mínum sem heitir Siggi, á leiðinni heim úr skólanum.  Það leit út fyrir að hann væri með allar skólabækurnar sínar í fanginu, og ég hugsaði með mér: ,, hver í ósköpunum fer með allar skólabækurnar heim á föstudegi?  Hann hlýtur að vera nörd.

Ég var búinn að plana helgina sem framundan var með partýum og fótbolta með vinum mínum. Ég hlakkaði mikið til þannig að ég yppti bara öxlum og gekk áfram.  Þar sem ég gekk þarna sá ég krakkahóp hlaupa í áttina að Sigga. Þau slógu bækurnar úr fangi hans og hrintu honum svo að hann datt í götuna.  Gleraugun flugu af honum og lentu í grasinu langt frá honum.  Hann leit upp og ég sá sorgina í augum hans.  Ég vorkenndi honum, þannig að ég hljóp til hans þar sem hann var að leita að gleraugunum sínum.  Ég sá tár í augum hans.  Ég rétti honum gleraugun og sagði, að þessir krakkar væru hálfgerðir asnar og ættu ekki að haga sér svona.  Hann horfði á mig, þakkaði mér fyrir og brosti.  Bros hans og augnaráð báru vott um mikið þakklæti.

Ég hjálpaði honum að tína saman bækurnar og ég spurði hvar hann ætti heima.  Þá kom í ljós að hann átti heima nálægt mér, svo að ég spurði hann afhverju ég hefði aldrei séð hann fyrr. Þá sagði hann mér að hann hefði áður verið í einkaskóla.  Við spjölluðum alla leiðina heim og ég hjálpaði honum að halda á bókunum.  Mér fannst hann vera ansi hress strákur og spurði hvort hann væri til í að koma með mér og vinum mínum í fótbolta næsta laugardag.  Hann var sko til í það.  En ekki aðeins það heldur var hann með okkur alla helgina. Vinir mínir og ég kunnum betur og betur við hann eftir því sem við kynntumst honum betur.

Á mánudagsmorgninum hitti ég Sigga með allar bækurnar frá föstudeginum og ég gat ekki annað en gert smá grín af honum og sagði: ,,Þú færð örugglega svaka vöðva eftir að bera þessar bækur á hverjum degi‘‘ Hann hló og rétti mér helming bókanna og saman gengum við í skólann.

Á næstu fjórum árum urðum við Siggi bestu vinir.  Þegar við vorum á lokaárinu í menntaskóla fórum við að huga að framhaldsnámi.  Þá kom í ljós að hugur okkar stefndi í sína hvora áttina, og við ætluðum í sinn hvorn framhaldsskólann.  Hann ætlaði að verða læknir en ég viðskiptafræðingur.  Ég vissi að við myndum alltaf verða  vinir.  Fjarlægðin á milli skólanna myndi ekki eyðileggja vináttu okkar.  Siggi var afburðarnemandi.  Ég stríddi honum stundum á því að hann væri nörd en hann bara hló að því.  Hann fílaði menntaskólann í botn.  Á útskriftardaginn átti Siggi að flytja ræðu, því hann var dúx.  Hann leit rosalega vel út.  Hann var töff strákur og gleraugun fóru honum vel.  Allar stelpurnar voru yfir sig hrifnar af honum. Stundum öfundaði ég hann og á útskriftardaginn leið mér þannig.  En ég tók  eftir því að hann var hálf kvíðinn, svo að ég klappaði honum á öxlina og sagði: Þú verður frábær, ekki hafa áhyggjur‘‘. Hann horfði á mig þakklátur og brosti svo byrjaði hann á ræðunni:   Á útskriftardaginn gefst tækifæri til að þakka þeim sem hjálpuðu manni í gegnum þessi fjögur erfiðu skólaár.  Til dæmis foreldrum sínum, systkinum, kennurum og ef til vill þjálfara sínum í íþróttum, en fyrst og fremst vinum sínum.  Ég ætla að segja ykkur öllum, að það að vera vinur einhvers, er besta gjöf sem þú getur gefið nokkurri manneskju.  Ég ætla að segja ykkur smá sögu:  Ég horfði undrandi á vin minn standa þarna við púltið á meðan hann sagði frá deginum er við hittumst fyrst.  Þá var hann orðinn svo dapur og þreyttur á að eiga enga vini, og á því að smella ekki inn í nokkurn vinahóp í skólanum, að hann hafði ákveðið að fyrirfara sér þessa helgi.  Hann talaði um að hann hefði tekið allar bækurnar og tæmt alveg skápinn sinn til þess að mamma hans þyrfti ekki að gera það þegar hann væri dáinn.  Hann horfði beint í augu mín, brosti og sagði: ,, Mér var bjargað þennan dag. Vinur minn bjargaði mér frá því að fyrirfara mér‘‘  Það fór kliður um salinn, þegar þessi myndarlegi og vinsæli ungi maður sagði okkur frá þessu viðkvæma atviki. Foreldrar hans brostu til mín þakklætisbrosi. Það var einmitt á þessari stundu, sem ég gerði mér grein fyrir því hvað vinátta raunverulega er.

Guð hefur skapað okkur fyrir hvort annað og til að hafa áhrif hvort á annað.

Ekki vera sá sem hrindir öðrum, sá sem hrindir annarri manneskju niður í skítinn.  Vertu sá sem reisir hana upp og hjálpar henni að bera erfiðleikana.  Eitt lítið atriði, t.d. hvernig þú bregst við í vissum aðstæðum, getur breytt lífi annarra manneskju, til góðs eða ills.

Höfundur Ókunnur

Kær kveðja SÞS


Bloggfærslur 12. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband