Frumkvöðlar í Öryggismálum sjómanna

Saga öryggismála sjómanna í Vestmannaeyjum

  Vestmannaeyingar frumkvöðlar á sviði öryggismála sjómanna

Vestmannaeyingar hafa í gegnum tíðina haft mikinn áhuga á öryggismálum sjómanna.  Ástæðan eflaust sú að mikið manntjón hefur orðið í sjóslysum við Eyjarnar.  Einnig má nefna að ófá slys hafa orðið innan hafnar bæði hér áður fyr þegar hafnaraðstaða var léleg og bátar bundnir á ból, og því miður hafa einnig margir tugir manna drukknað í Vestmannaeyjahöfn á síðustu 30 til 40 árum. Þessi slys við höfnina  gerðu það að verkum að eyjamenn fóru að hugsa meira um öryggi hafna, og voru frumkvöðlar í mörgu sem við kom öryggi hafna, má þar nefna ljós í stiga, sem nú þikir sjálfsagður hlutur í öllum höfnum, enda hafa þessi ljós bjargað mörgum mönnum frá drukknun.. 

Það helsta sem Eyjamenn hafa haft forustu um

Fyrsta björgunarfélag landsins var stofnað í Eyjum árið 1918, það fékk nafnið Björgunarfélag Vestmannaeyja. Félagið beitti sér fyrir kaupum á björgunarskipi, sem sían var keypt í mars 1920. Skipið hlaut nafnið ÞÓR og var fyrsta björgunar og varðskip sem Íslendingar eignuðust. 

Talstöðvar

 Vestmannaeyingar voru  fyrstir til þess að fá talstöðvar í báta sína. Þar var að verki Gísli J Johnsen útgerðarmaður en hann setti  talstöð í bát sinn 1927.

Gúmmíbjörgunarbátar

Árið 1951 var Kjartan Ólafsson útgerðarmaður Veigu VE fyrstur útgerðarmanna á Íslandi til að setja Gúmmíbjörgunarbát um borð í fiskiskip í staðin fyrir þunga fleka. Árið 1952 fórst Veiga VE og með henni tveir menn en aðrir úr áhöfn bátsins björguðust í gúmmíbjörgunarbátinn. Það kostaði töluverða baráttu að fá þetta björgunartæki viðurkennt. En slík var trú sjómanna og útgerðarmanna á þessu björgunartæki að vertíðina 1952 voru 40 vélbátar í Vestmannaeyjum komnir með gúmmíbát.

 

Öryggi við netaspil

Árið 1971 hannaði Sigmund Jóhannsson teiknari og uppfinningamaður öryggisloka við netaspil, Sigmund hannaði lokan að beiðni skipstjóra sem hafði lent í því að tveir menn á skipi hans höfðu farið í netaspilið sömu vertíðina. Það er skemmst frá því að segja að lokinn fækkaði ekki bara slysum við netaspil, heldur útrýmdi þeim alveg.Útgerðarmenn í Eyjum settu þennan búnað strax í svo til öll skip sem stunduðu netaveiðar, en því miður tók það níu ár meðtilheyrandi slysum að lögleiða þennan frábæra öryggisbúnað og koma þeim í öll fiskiskip.

Losunar og sjósetningarbúnaður

Í mars 1980 hannaði Sigmund Jóhannsson búnað sem  gat  losað og sjósett gúmmíbjörgunarbáta bæði handvirkt og sjálfvirkt. Þetta var þvílík bylting í öryggis-málum sjómanna, að margir vildu líkja henni við þegar gúmmíbátarnir komu til sögunar.En eins og oft áður voru það einungis sjómenn og útgerðarmenn í Vestmannaeyjum sem sáu notagildi þessa búnaðar í fyrstu, og var hann því fyrst settur í Vestmannaeyja-flotan 1981. Því miður tók barátta vestmannaeyinga  fyrir þessum öryggisbúnaði allt of langan tíma en komst  endanlega í höfn árið 2000. Er stefnt að því að skrá þessa sögu sem er alveg ótrúleg. 

Björgvinsbeltið

Björgvinsbeltið sem Björgvin Sigurjónsson stýrimaður hannaði, er eitt af þeim tækjum sem hafa auðveldað mjög að ná mönnum aftur um borð sem hafa farið útbyrðis. Þetta björgunartæki er nú komið um borð í flest öll  skip á Íslandi og flestar á hafnir landsins. 

Slysavarnardeildin Eykindill í Vestmannaeyjum

Margt fleira hefur verið gert til að auka öryggi sjómanna sem of langt mál er upp að telja, en þó verður hér að nefa eitt félag sem hefur í tugi ára gert óhemju mikið fyrir öryggi sjómanna í Vestmannaeyjum og reyndar víðar. Þetta er kvennadeild Slysvarnarfélags Íslands Eykindill. Það er með ólíkindum hvað þessar konur hafa gert mikið til að bæta öryggi sjómanna.

 

Margt fleira væri hægt upp að telja

Margt fleira væri hægt að skrifa hér um áhuga Eyjamanna á öryggismálum sjómanna en þetta verður að næja að sinni. Heimildir Sjómannadagsblað Vestmannaeyja, Ratsjá, Skýrslur Rannsóknarnefndar Sjóslysa 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband