15.7.2012 | 21:03
Hlýri VE og Jón Maríus
Þessa mynd af Hlýra VE og Jóni Maríus Guðmundssyni frá Sjólyst tók ég fyrir margt löngu. Það er náttúrulega ófyrirgefanlegt að láta vanta stefnið á bátinn. Tryggvi líkansmiður og vélstjóri til margra ára lýsir vel í skemmtilegu viðtali í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2012 hvernig hann metur myndir af skipum. Þessi kæmist ekki á blað hjá honum ef ég met ráðleggingar hans rétt.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.