Nú líður að SJÓMANNADEGI

Nú líður að sjómannadegi og þá endurtek ég hér grein sem ég skrifaði um sjómannadaginn og hvet sjómenn til að mótmæla því harðlega að sjómannadagur sé kallaður hátíð hafsins.

Flottur Sjómannadagur 2Sjómannadagurinn er ekki hátíð hafsins. Í Vestmannaeyjum er Sjómannadagurinn einn skemmtilegasti hátíðardagur ársins og við peyjarnir sem áttum sjómenn sem feður sem og aðra ættingja vorum svo sannarlega stoltir af því að tengjast þeim og þar með Sjómannadeginum. Þegar ég síðar gerði sjómennskuna að ævistarfi mínu, gerði ég mér fljótt grein fyrir því að þessi dagur er miklu meira en skemmtun í tvo daga. Sjómannadagurinn er órjúfanlegur hluti af stéttarbaráttu og kynningu á starfi sjómanna. Í Vestmannaeyjum má segja að allir tengist sjómönnum á einn eða annan hátt eins og víða í útgerðarbæjum landsins. Á Sjómannadaginn kynnum við sjómannsstarfið, minnumst þeirra sem hafa látist og sérstaklega þeirra sem látist hafa í slysum á sjó, heiðrum aldna sjómenn og ekki hvað síst gerum við okkur glaðan dag með fjölskyldum, vinum og skipsfélögum. Sjómannadagsráð Reykjavíkur og Hafnarfjarðar sér Sjómannadaginn öðrum augum, ekki sem Sjómannadag heldur sem dag hátíðar hafsins. Það er óskiljanlegt að sjómenn skuli ekki mótmæla því að Sjómannadagurinn skuli vera tekinn eignarnámi og nefndur Hátíð hafsins í Reykjavík með vitund og vilja stærstu sjómannafélaga landsins.

Sjómannadagur 1971 (sigirgeir j)Hafið hefur tekið líf margra sjómanna sem voru ættingjar okkar, vinir og skipsfélagar. Þess má geta til fróðleiks að á árunum 1962 til 1992 árin sem undirritaður stundaði sjó frá Vestmannaeyjum, fórust 58 sjómenn sem voru á bátum frá Eyjum, og eru þá taldir með þeir Eyjasjómenn sem fórust og stunduðu tímabundið sjó annarsstaðar á landinu á sama tíma. Þessi tala um dauðaslys á sjó er mun hærri og skiptir hundruðum ef taldir eru allir þeir sjómenn sem fórust á þessu tímabili. Það er eitt af markmiðum Sjómannadagsins að minnast þessara manna, og er minningarathöfn við minnisvarðann við Landakirkju ein eftirminnilegasta stund Sjómannadagsins í Vestmannaeyjum . Finnst mönnum það viðeigandi að minnast þeirra sjómanna sem farist hafa á hafi úti og margir þeirra gista hina votu gröf, á degi sem kallaður er Hátíð hafsins? Að mínu viti er þetta fráleitt og móðgandi fyrir íslenska sjómenn.

Frá sjómannad, Gúmmíbátur Þessi gjörningur Sjómannadagsráðs er farinn að smita út frá sér og sjómenn í hugsunarleysi farnir að breyta nafni dagsins. Í Þorlákshöfn þar sem flest snýst um sjóinn, hafa þeir á síðustu árum apað þetta eftir Reykjavíkurfélögunum og uppnefna Sjómannadaginn sinn Hafnardaga. Sjómenn gera sér ekki grein fyrir því hvað Sjómannadagurinn er sjómönnum mikilvægur hvað varðar kynningu á starfi sjómanna, hann er okkar hátíðisdagur, ekki hátíð hafsins. Í lögum um Sjómannadaginn segir m.a: Við tilhögun Sjómannadagsins skulu m.a. eftirfarandi markmið höfð að leiðarljósi: 1. Að stuðla að því að Sjómannadagurinn skipi verðugan sess í íslensku þjóðlífi. 2. Að efla samhug meðal sjómanna, hinna ýmsu starfsgreina sjómannastéttarinnar og stuðla að nánu samstarfi þeirra. 3. Að heiðra minningu látinna sjómanna, þá sérstaklega þeirra sem láta líf sitt vegna slysfara í starfi. 4. Að heiðra fyrir björgun mannslífa og farsæl félags- og sjómannsstörf. 5. Að kynna þjóðinni áhættusöm störf sjómanna og mikilvægi starfanna í þágu þjóðfélagsins. Eitt af lagaskyldum Sjómannadagsráðsins er líka: â€Å¾Að beita sér í fræðslu og menningarmálum er sjómannastéttina varða og vinna að velferðar- og öryggismálum hennar.“ Með því að uppnefna Sjómannadaginn Hátíð hafsins er ekki verið að stuðla að því að Sjómannadagurinn skipi verðugan sess í íslensku þjóðlífi, því síður eflir það samhug sjómanna eða kynnir þjóðinni áhættusöm störf þeirra og mikilvægi. Engan starfandi sjómenn hef ég hitt sem er ánægður með þessa nafnbreytingu. Nokkrir segja þetta afleiðingu þess að sum af stéttarfélögum sjómanna hafa verið sameinuð stórum landfélögum og þar með hafa tekið völdin menn sem hafa lítinn skilning og takmarkaðan áhuga á sjómannsstarfinu.

Sjómannadagsblað SnæfellsbæjarForustumenn í stéttarfélögum sjómanna í Reykjavik hafa sagt mér að ef Faxaflóahafnir hefðu ekki tekið þátt í kostnaði við hátíðahöld Sjómannadagsins, hefði dagurinn sennilega lagst af. Hefur stjórn Faxaflóahafna þá sett þau skilyrði til styrkja, að nafn Sjómannadagsins verði þurrkað út og breytt í Hátíð hafsins? Samþykkti Sjómannadagsráð þessa nafnbreytingu Hvað vakir fyrir þeim 34 stjórnarmönnum sjómannafélaga og stjórn Faxaflóahafna að vilja breyta nafni Sjómannadagsins? Hvers vegna má hann ekki heita sínu rétta nafni Sjómannadagur ?.. Er þetta kannski einn liðurinn enn til þess að þagga niður í sjómönnum?.Allir hugsandi sjómenn hljóta að sjá að þessi breyting á nafni Sjómannadagsins er niðurlægjandi fyrir sjómannastéttina. Sigmar Þór Sveinbjörnsson Stýrimaður.


Bloggfærslur 21. maí 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband