Færsluflokkur: Bloggar

Séð yfir höfnina

Ólafur Á 3


Það er frábært hvað starfmenn fiskistofu standa vel saman.

Það er frábært hvað starfsmenn Fiskistofu standa vel saman í að reyna að fá ráðherra til að leiðrétta vitleysuna sem hann er að reyna að framkvæma með því að flytja Fiskistofu til Akureyrar. Það er nefnilega hárrétt sem stendur í yfirlýsingu starfsmanna Fiskistofu:

"Fiskistofa stendur ekki undir lögboðnu hlutverki sínu ef hún verður viðskila við reynslu og þekingu fjölda starfsmanna.Stofnun er fyrst og fremst mannauðurinn , þekking hans, hæfni og reynsla. Sérstaklega er þetta mikilvægt nú þegar boðaðar hafa verið umfángsmiklar breitingar í stjórn fiskveiða."

 

 


mbl.is „Þú yrðir maður að meiri“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrídrangaviti heimsóttur

Þrídrangar ´4

Ingar Engilbertsson í vitadyrunum

Þrídrangar 18

Brim við Þrídranga

Þrídrangar 16

Vitahúsið

Þrídrangar 11

Vitahúsið séð frá þyrlu Landhelgisgæslunnar

Þrídrangar 14

 


Einn gamall flottur bíll frá BSR

leigubíll BSR

Hvaða mótel eða tegund af bil ætli þetta sé, þekkir einhver bílinn ??

 


Afleiðingar af gosinu á Heimaey 1973

Happastaðir við Hvitingaveg fór illa í gosinu 1973. þakið hefur þarna gefið sig undan þunganum á vikrinum.

Happastaðir við hvítingaveg


Á leið í úteyjar

Á leið í úteyjar


Frábærar Hraðfréttir á RÚV í kvöld

Mæli með nýjum stórnanda :-).


Urðaviti fór undir hraun 1973

Urðarviti gamli


Vísnaleikur

Vísnaleikur

 

Fléttum hróður, teflum taflið

teigum þráðinn snúna.

 

Botn fæst með því að sleppa fyrsta staf hvers orðs fyrir sig.

 

Léttum róður, eflum aflið

eigum ráðin núna.

 

Höfundur Ókunnur 


Helgi Sæmundson

  

Helgi Sæmundsson Akóges

Helgi Sæmundsson var fæddur í Baldurshaga á Stokkseyr þann 17.júlí 1920, en fluttist búferlum til Vestmannaeyja fimmtán ára gamall ásamt foreldrum sínum, Sæmundi Benediktssyni, sjómanni og verkamanni, og konu hans, Ástríði Helgadóttur. Helgi stundaði nám við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum 1936-1939.

Hann hélt til Reykjavíkur og settist í Samvinnuskólann um það bil sem heimsstyrjöldin síðari var að hefjast. Sama árið og hann útskrifaðist þaðan sendi hann frá sér ljóðabókina Sól yfir sundum (1940), og henni var vel tekið, enda voru kvæði í þá daga lesin betur og af fleirum en nú; almenningur fjallaði um þau og skipti sér af þeim.

 Helgi lést á Landspítala í Fossvogi 18. febrúar 2004. ( úr minningargrein um Helga)

 

 

Helgi Sæmundsson 75 ára

úr ljóðabókinni Töfrar steinsis eftir Hafstein Stefánsson

-

Allir lífsins lögum hlíta,

ljúft er að eiga góða vini.

Mega þeirra myndir líta

í minninganna endurskini.

-

Austur í flóa fæddist sveinn

fagur, hýr og viðmótshreinn,

fárra vikna fór hann einn

svo fylgja honum mátti ei neinn.

-

Orku saman safnaði,

siðum ljótum hafnaði,

í kostum drengur dafnaði

draumabarn – að jafnaði.

-

Dafnaði í dyggðum fljótt,

dáði menntir, vit og þrótt.

Eignaðist snemma orðagnótt

þó aldrei segði piltur ljótt.

-

Margri vinnu vandist hann,

verkin dáðu meistarann.

Gekk til starfs með sóma og sann,

sjálegt efni í fyrirmann.

-

Lifði spart og las á bók,

létt og markvist prófin tók.

Smáði vín en kneyfði kók,

kristilegan vísdóm jók.

-

Orðsnjall hann orti brag,

Íslands þekkti kvæðalag.

Tók sér konu, treysti hag

og tignar hana enn í dag.

-

Hjá demókrötum var hann vís

vafinn inn í lof og prís.

Geymdi í skapi eld og ís,

íhald forðist – og SÍS.

-

Á mannvitsþingum merkið bar,

mang við trogið allt niður skar.

Flaut á knerri farsældar

fram hjá skerjum ágirndar.

-

Lagði djarft á lífsins ál

lítið fley, en súðin stál.

Tunga hálfs og sjö er sál

sífellt ung, og hennar skál.

-

Lifðu hress í heila öld,

haltu gæfuveginn.

Hljóttu síðan sæmdargjöld

Sankti Péturs megin.

-

 

Undir þetta skrifar Hafsteinn :

Ég reyndi að hafa þetta glettið, ljúft og hrekklaust, en svo finnst mér Helgi vera sjálfur.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband