Kæri samferðarmaður

Verið velkomin kæri samferðamaður

Góðan dag kæri samferðarmaður,
gefðu þér tíma til að vera
hamingjusamur,
Þú ert undur lífsins á þessari jörð.
Þú ert einstakur, sérstakur, óbætanlegur.
Veistu það?
Taktu þér góðan tíma til að vera
hamingjusamur.
Tíminn er engin hraðbraut,
milli vöggu og grafar,
En staður til að fá sér sæti í
sólskininu.

Höfundur ókunnur

Limra

Að uppruna erum við norsk,
að innræti meinleg og sposk
en langt fram í ættir
minna útlit og hættir á
ýsu og steinbít og þorsk.

Johann S. Hannesson


Aðeins verið að yngja upp hjá N1

Magnús Orri Óskarsson olíukall Hvað ætlarðu að fá marga lítra manni, bensínið er ekki gefins í dag :-) M.O.Ó. við bendíndælu N1.


Kona með nikku

 Svala Guðmundsdóttir þenur nikkuna, mynd úr gömlu Sjómannadagsblaði VestmannaeyjaSvala Guðmundsdóttir þenur nikkuna


Illugagatan gosárið 1973

Kolla séð niður Illugagötu Séð niður Illugagötu,þarna sést hvað mikill vikur kom úr Eldfelli vestst í bænum.


Gamall vörubíll við stakkstæði í Eyjum

Vörubíll 2 Ekki er vitað árið sem þessi mynd er tekin, en þetta er örugglega með fyrstu vörubílum sem komu til Vestmannaeyja.


Ljóðið LÍFSREGLUR

Ljóðið LÍFSREGLUR eru úr ljóðabókinni Erla HÉLUBLÓM sem gefin var út í Reykjavík 1937 og er eftir Guðfinnu Þorssteinsdóttir.
Þetta er með fallegri ljóðum sem ég hef lesið.

Lífsreglur.

Vertu alltaf hress í huga,
hvað sem kann að mæta þér.
Lát ei sorg né böl þig buga.
Baggi margra þungur er.
Treystu því að þér á herðar,
þyngri byrði´ ei varpað er
en þú hefur afl að bera.
Orka blundar næg í þér.

Grafðu jafnan sárar sorgir
sálar þinnar djúpi í.
Þótt þér bregðist besta voni,
brátt mun lifna önnur ný.
Reyndu svo að henni´ að hlynna,
hún þó svífi djarft og hátt.
Segðu aldrei: ,, Vonlaus vinna!“
Von um sigur ljær þér mátt.

Dæmdu vægt, þótt veffarandi
villtur hlaupi gönguskeið.
Réttu hönd sem hollur vinur,
honum beindu‘ á rétta leið.
Seinna, þegar þér við fætur
Þéttast mótgangs-élið fer,
mænir þú til leiðarljóssins,
ljóss, sem einhver réttir þér.

Dæmdu vægt um veikan bróðir
veraldar í ölduglaum‘,
þótt hans viljaþrek sé lamað,
þótt hann hrekist fyrir straum´,
Sálarstríð hans þú ei þekkir,
þér ei veizt hvað mæta kann,
þótt þú fastar þykist standa;
þú er veikur eins og hann.

Fyrr en harða fellir dóma,
fara skaltu´ í sjálfs þín barm.
Margur dregst með djúpar undir;
dylur margur sáran harm.
Dæmdu vægt þíns bróðir bresti;
breyzkum verður sitthvað á.
Mannúðlega´ og milda dóma
muntu sjálfur að kjósa´ að fá.

Þerraðu kinnar þess er grætur.
Þvoðu kaun hins særða manns.
Sendu inn í sérhvert hjarta,
sólargeisla kærleikans.
Vertu sanngjarn. Vertu mildur.
Vægðu þeim sem mót þér braut.
Bið þinn Guð um hreinna hjarta,
hjálp í lífsins vanda og þraut.

Guðfinna Þorsteinsdóttir


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband