Sjómannadagurinn er ekki Hátíð hafsins

Á netaveiðumEndurtekið efni sem ég vona að sjómenn lesi og hugsi sinn gang nú þegar sjómannadagurinn nálgast . Ég gefst aldrei upp við að mótmæla því að sjómannadagurinn sé uppnefndur Hátíð hafsins af sjómannafélögum á Reykjavíkursvæðinu. Vér mótmælum sjómenn.

Sjómannadagurinn er ekki hátíð hafsins. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga fyrir Sjómannadeginum. Í Vestmannaeyjum þar sem ég er fæddur og ól mestan minn aldur er Sjómannadagurinn einn skemmtilegasti hátíðardagur ársins og við peyjarnir sem áttum sjómenn sem feður sem og aðra ættingja vorum svo sannarlega stoltir af því að tengjast þeim og þar með Sjómannadeginum. Þegar ég síðar gerði sjómennskuna að ævistarfi mínu, gerði ég mér fljótt grein fyrir því að þessi dagur er miklu meira en skemmtun í tvo daga.

Sjómannadagurinn er órjúfanlegur hluti af stéttarbaráttu og kynningu á starfi sjómanna. Í Vestmannaeyjum má segja að allir tengist sjómönnum á einn eða annan hátt eins og víða í útgerðarbæjum landsins.

Á Sjómannadaginn kynnum við sjómannsstarfið, minnumst þeirra sem hafa látist og sérstaklega þeirra sem látist hafa í slysum á sjó, heiðrum aldna sjómenn og ekki hvað síst gerum við okkur glaðan dag með fjölskyldum, vinum og skipsfélögum. Þá hefur t.d. í 60 ár verið gefið út veglegt Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. Sjómannadagsráð Reykjavíkur og Hafnarfjarðar sér Sjómannadaginn öðrum augum, ekki sem Sjómannadag heldur sem dag hátíðar hafsins. Það er mér óskiljanlegt að sjómenn skuli ekki mótmæla því að Sjómannadagurinn skuli vera tekinn eignarnámi og nefndur Hátíð hafsins í Reykjavík með vitund og vilja stærstu sjómannafélaga landsins sem þar eru staðsett.

Sjómannadagur 1971 (sigirgeir j)Hafið hefur tekið líf margra sjómanna sem voru ættingjar okkar, vinir og skipsfélagar. Þess má geta til fróðleiks að á árunum 1962 til 1992 árin sem undirritaður stundaði sjó frá Vestmannaeyjum, fórust 58 sjómenn sem voru á bátum frá Eyjum, og eru þá taldir með þeir Eyjasjómenn sem fórust og stunduðu tímabundið sjó annarsstaðar á landinu á sama tíma, þar af voru fjórir jafnaldrar mínir. Þessi tala um dauðaslys á sjó er að sjálfsögðu mun hærri og skiptir hundruðum ef taldir eru allir þeir íslensku sjómenn sem fórust á þessu tímabili. Það er eitt af markmiðum Sjómannadagsins að minnast þessara manna, og er minningarathöfn við minnisvarðann við Landakirkju ein eftirminnilegasta stund Sjómannadagsins í Vestmannaeyjum . Finnst mönnum það viðeigandi að minnast þeirra sjómanna sem farist hafa á hafi úti og margir þeirra gista hina votu gröf, á degi sem kallaður er Hátíð hafsins? Að mínu viti er þetta fráleitt og hreinlega móðgandi fyrir íslenska sjómenn. Þessi gjörningur Sjómannadagsráðs er þegar farinn að smita út frá sér og sjómenn í hugsunarleysi farnir að breyta nafni dagsins. Hafnardagar í ÞorlákshöfnÍ Þorlákshöfn þar sem flest snýst um sjóinn og tengdum störfum, hafa þeir á síðustu árum apað þetta eftir Reykjavíkurfélögunum og uppnefna Sjómannadaginn sinn Hafnardaga, og sjómenn samþykkja þetta umyrðalaust. Það er því ótrúlegt að sjómenn og stéttarfélög þeirra skuli ekki mótmæla þessu opinberlega hver á sínum félagssvæði. Það er eins og sjómenn geri sér ekki grein fyrir því hvað Sjómannadagurinn er sjómönnum mikilvægur hvað varðar stéttarbaráttuna og kynningu á starfi sjómanna.

Flottur Sjómannadagur 2Sjómannadagurinn er hátíðisdagur haldinn sjómönnum til heiðurs, og er ekki hátíð hafsins. Í lögum um Sjómannadaginn segir m.a.: “2. grein a) Sjómannadagsráð hefur með höndum hátíðahöld Sjómannadagsins ár hvert í samræmi við stofnskrá um Sjómannadag frá 1937 og lög um Sjómannadag, nr. 20, 26.mars 1987. Við tilhögun Sjómannadagsins skulu m.a. eftirfarandi markmið höfð að leiðarljósi:

1. Að stuðla að því að Sjómannadagurinn skipi verðugan sess í íslensku þjóðlífi.

2. Að efla samhug meðal sjómanna, hinna ýmsu starfsgreina sjómannastéttarinnar og stuðla að nánu samstarfi þeirra.

3. Að heiðra minningu látinna sjómanna, þá sérstaklega þeirra sem láta líf sitt vegna slysfara í starfi.

4. Að heiðra fyrir björgun mannslífa og farsæl félags- og sjómannsstörf.

5. Að kynna þjóðinni áhættusöm störf sjómanna og mikilvægi starfanna í þágu þjóðfélagsins. Eitt af lagaskyldum Sjómannadagsráðsins er líka:

Að beita sér í fræðslu og menningarmálum er sjómannastéttina varða og vinna að velferðar- og öryggismálum hennar.“ .

Ég er sannfærður um að með því að uppnefna Sjómannadaginn Hátíð hafsins er ekki verið að stuðla að því að Sjómannadagurinn skipi verðugan sess í íslensku þjóðlífi, því síður eflir það samhug sjómanna eða kynnir þjóðinni áhættusöm störf þeirra og mikilvægi. Ég hef rætt þetta við marga starfandi sjómenn og hef engan hitt sem er ánægður með þessa nafnbreytingu. Nokkrir segja þetta afleiðingu þess að sum af stéttarfélögum sjómanna hafa verið sameinuð stórum landfélögum og þar með hafa tekið völdin menn sem hafa lítinn skilning og takmarkaðan áhuga á sjómannsstarfinu , ekki veit ég hvort það er rétt. Ég hef rætt þetta Brotsjór 1 Þorbjörn Víglundssonvið nokkra forustumenn í stéttarfélögum sjómanna í Reykjavik og þeir hafa sagt mér að ef Faxaflóahafnir hefðu ekki tekið þátt í kostnaði við hátíðahöld Sjómannadagsins, hefði dagurinn sennilega lagst af. Hefur stjórn Faxaflóahafna virkilega sett þau skilyrði fyrir því að styrkja Sjómannadaginn, að nafn dagsins verði þurrkað út og breytt í Hátíð hafsins og Sjómannadagsráð samþykkt það?. Ef það er þannig í pottinn búið er ekki von á góðu frá Sjómannadagsráði sem í eru hvorki meira né minna en 34 menn og 31 til vara úr sex sjómannafélögum. Hvað vakir fyrir þeim stjórnarmönnum sjómannafélaga og stjórn Faxaflóahafna að vilja breyta nafni Sjómannadagsins? Hvers vegna má hann ekki heita sínu rétta nafni Sjómannadagur ?. Þetta er allt hið furðulegasta mál sem sjómenn ættu að hugsa alvarlega. Er þetta kannski einn liðurinn enn til þess að þagga niður í sjómönnum?.Allir hugsandi sjómenn hljóta að sjá að þessi breyting á nafni Sjómannadagsins er niðurlægjandi fyrir sjómannastéttina. Að sjómannasamtökin skuli samþykkja þessa breytingu á nafni Sjómannadagssin sýnir að sjómannadagsráð virðist slitið úr tengslum við sjómennina sjálfa. Þetta eru eflaust allt ágætir menn sem sitja í Sjómannadagsráði Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, en væri ekki sterkur leikur að leyfa yngri mönnum að komast að, mönnum sem eru tilbúnir að verja hagsmuni sjómanna betur, alla vega finnst mér það lágmarkskrafa að þeir verji nafn Sjómannadagsins, þennan eina dag sem sjómenn sannarlega eiga lögum samkvæmt.

Sjómenn eiga ekki að sætta sig við annað en að dagurinn sé kallaður sínu rétta nafni Sjómannadagurinn. Gleðilegan sjómannadag

Sigmar Þór Sveinbjörnsson fyrverandi stýrimaður


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er þér svo algerlega sammála þarna Sigmar.  Í mínum huga var stofnað til Sjómannadagsins til að heiðra sjómenn og einnig til að minna landsmenn á hversu mikilvæg störf sjómanna eru og hafa verið í gegnum tíðina.  Með þessari "skrumskælingu" er verið að hefja hafið upp til skýjanna en hafið hefur verið versti óvinur sjómanna og þeir hafa sífellt verið að berjast við hafið og öfl þess.  Ég get ekki séð að það sé nokkur ástæða til að upphefja hafið á einn eða neinn hátt.

Jóhann Elíasson, 1.6.2016 kl. 13:31

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Takk fyrir þessa athugasemd Jóhann, alltaf gott þegar maður fær góðar athugasemdir við það sem maður er að blogga. Gleðilegan sjómannadag kæri bloggvinur

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 1.6.2016 kl. 14:29

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sammála hverju orði. Þessi nýmóðins ósiður  mun ganga af sjómannadeginum dauðum, sem slíkum, ef menn sjá ekki að sér.

Sem fyrrverandi sjómaður segi ég gleðilegan sjómannadag kæru kollegar, Jóhann og Sigmar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 1.6.2016 kl. 19:54

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Sammála hverju orði hjá þér Sigmar. Þetta er ekkert annað en skandall, þessi ónefni sem notuð eru yfir daginn okkar, sem stundað hafa og stunda enn sjóinn. "Hátíð viðskiptanna" félli sennilega ekkert allt of vel í verslunarmenn, frekar en að verkamenn sættu sig við að 1. maií væri kallaður "Hátíð vinnuseminnar".

 Sjómannadagurinn er ekki eingöngu hátíð, heldur einnig minningardagur um alla þá ótal íslensku sjómenn sem farist hafa, gegnum tíðina. Öllum þeim fjölda er vanvirðing sýnd með hinni nýju nafngift, sem deginum hefur verið valinn. Hafi þeir skömm fyrir, sem komu þessari ónefnu á koppinn.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 1.6.2016 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband